Eins og kemur fram hér á heimasíðunni er ég með ljósmyndastúdíó, staðsett í Reykjavík, og er reglulega með myndatökur í því. Ég hef líka stundum farið með stúdíó-búnað út á land og tekið stúdíómyndir þar.
En ég er hinsvegar líka að taka útimyndatökur og finnst það mjög skemmtilegt, svo ég ætla að fjalla aðeins um þær í þessari blogg-færslu.
Vorin og sumrin eru græn og falleg og mér finnst sérstaklega gaman að taka myndir í skógum, við sjóinn eða stöðuvötn, eða með falleg fjöll í bakgrunn, á vorin og sumrin.
Haustin bjóða upp á svo fallega bakgrunni með gulum og rauðum haustlitum og það er uppáhalds tíminn minn til að taka útimyndir.
Það er mjög gaman að taka fallegar snjómyndir á veturna - þó það sé stundum meira vesen. Það getur verið hálka, og þá erfiðara að komast á staði, og kalt að vera úti í langan tíma. En það er alltaf hægt að láta hlutina virka - finna tíma þegar það er fært að keyra eða staðsetningu sem er nálægt, og svo í tökunni að fara bara reglulega inn í bíl að hlýja sér.
Ég allavega hvet ykkur til að bóka ef þið hafið áhuga. Ég hef til dæmis myndað á Höfn, Borgarfirði eystra, Sauðárkróki, Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu. En ég get sagt ykkur hér og nú að ég er mjög opin fyrir öllum hugmyndum og mér finnst sérstaklega gaman að fara á nýja staði um landið fyrir útimyndatökur - frekar en að staðna og vera alltaf á sömu stöðunum.