
Markmiðið mitt er að láta fólki sem kemur til mín í myndatöku líða vel með sig og sína.
Ég heiti Malen og þetta eru 10 staðreyndir um mig:
Ég er frá Sauðárkróki og Borgarfirði eystra - bý á höfuðborgarsvæðinu og er með stúdíó þar en ferðast mikið á milli landshluta og tek að mér myndatökur um land allt.
Ég á hvolp sem heitir Nala og er íslenskur fjárhundur - hún er uppáhalds fyrirsætan mín.
Ég lærði ljósmyndun í Tækniskólanum frá 2020 til 2022.
Ég byrjaði að taka myndir sem krakki, tók vinkonur mínar stundum í myndatökur og við gerðum “American Next Top Model“ leik úr því.
Ég er tónlistarkona og það er hægt að hlusta á lögin mín á Spotify undir nafninu Malen.
Ég elska dýr og ferðaðist nýlega um Afríku þar sem ég naut mín í botn að taka dýralífsmyndir.
Ég bjó í Köben í ár og fór þar í söngskólann Complete Vocal Institute.
Ég á þrjár systur.
Mér finnst mjög næs að vera úti í náttúrunni og að fara í fjallgöngur. Ég elska líka að finna flotta staði fyrir útimyndatökur - náttúran bíður upp á svo marga flotta bakgrunni!
Ég bjó í Bretlandi þegar ég var 14 ára og tók þar áfanga í ljósmyndun. Þá bjó ég til mína fyrstu heimasíðu þar sem voru aðallega myndir sem ég tók af litlu systrum mínum: